Skip to content

Fræðslumolar

Hér má finna viðbótarupplýsingar um Borgarastríðið og skrif Ambrose Bierce.

Þrátt fyrir að Bierce hafi sjálfur tekið þátt í bardaganum við Resaca 13.-15. maí 1864 er engu að síður líklegt að sögusviðið og söguþráðurinn sé unninn upp úr reynslu hans og upplifun héðan og þaðan. Bardaginn við Resaca var annar í röð þeirra 12 bardaga sem áttu sér stað á tæplega 190 km leið frá Chattanooga í Tennessee til Atlanta ...
Resaca er um 40 km suðaustur af Chickamauga og um 115 km norður af borginni Atlanta í Georgíu-fylki. Við Resaca tóku um 159.000 hermenn þátt í bardaganum 13.-15. maí 1864; tæplega 99.000 úr Sambandshernum og 60.000 úr her Suðurríkjabandalagsins. Áætlað manntjón er rétt um 5.550 manns. Vorið 1864 var Chattanooga í Tennessee-fylki enn á valdi Sambandshersins en ef Sambandinu ætti ...
Sagan gerist í Virginíufylki, hvers staða er áhugaverð í ljósi sögunnar. Þó íbúar margra fylkja í Suðurríkjunum væru ekki allir sammála um þá útfærslu að skipta Bandaríkjunum upp í tvö sambandslönd, þá var klofningur innan fylkis afdrifaríkastur í Virginíu, sem liggur á mörkum þrælahaldsfylkja og afnámsfylkja. Íbúar í vestursýslum fylkisins óskuðu ekki eftir úrsögn úr sambandi ríkjanna samhliða hinum sýslunum ...
Sagan Chickamauga er sögð frá sjónarhóli sex ára gamals drengs á sveitabæ í Suðurríkjunum. Alla sína þekkingu af stríðsátökum og hermennsku hefur hann úr myndskreyttum bókum í anda hetjudáða fyrri kynslóða en er öldungis ómeðvitaður um stríðið sem geisar í kringum heimili hans og skilur ekki þessar helsærðu verur sem á vegi hans verða. Bierce varð sjálfur vitni að skilningsleysi ...
18. - 20. september 1863 stóð einn blóðugasti bardagi Borgarastríðsins yfir í norðurhluta Georgíu-fylkis, hinn svonefndi Chickamauga-bardagi (e. the battle of Chickamauga) þar sem um 125 þúsund hermenn börðust; 60.000 úr Sambandshernum og 65.000 úr Suðurríkjaher. Þeim bardaga lauk með sigri Suðurríkjahersins og manntjóni sem var hið annað mesta í sögu stríðsins, með tæplega 35 þúsund föllnum, slösuðum eða horfnum ...
3. júní 1861: Bardaginn við Philippi. 11. júlí 1861: Bardaginn við Rich Mountain. 13. júlí 1861: Bardaginn við Corrick's Ford. 12.-15. september 1861: Bardaginn við Cheat Mountain. 3. okt. 1861: Bardaginn við Greenbrier River, 13. des. 1861: Camp Allegheny -bardaginn, líka nefndur Bardaginn við Allegheny-fjall.. 6.-7. apríl 1862: Bardaginn við Shiloh (Battle of Shiloh). Bierce og herdeild hans kom á ...
Áætlað er að um 850.000 manns hafi látist í stríðinu af völdum vopna, sára eða sjúkdóma. Það er hátt í þriðjungur þeirra 3 milljóna manna sem börðust. Á tveimur dögum Shiloh-bardaga við bakka Tennesse-fljóts létust fleiri Bandaríkjamenn en í öllum fyrri stríðum Bandaríkjanna samanlagt. Í bardaganum við Antietam þann 17. september 1862 létust eða særðust 23.000 manns samtals frá báðum ...
Á vef alfræðiritsins Britannica segir m.a.: Tapaði málstaðurinn (e. Lost Cause) er sagnfræðileg túlkun frá Borgarastríði Bandaríkjanna sem flestir sagnfræðingar horfa á sem mýtu eða goðsögn, hverrar tilgangur er að varðveita heiður Suðurríkjanna með því að sýna ósigur Suðurríkjabandalagsins í sem bestu ljósi. Samkvæmt þessari túlkun voru það gífurlegir yfirburðir Sambandsins (the Union) varðandi bæði mannafla og aðföng sem færðu ...
Til að setja þessa atburði í samhengi við evrópska sögu má nefna nokkra sögulega atburði frá seinni hluta 19. aldar. Ísland: 1845: Alþingi Íslendinga, sem frá 930 til 1799 kom árlega saman á Þingvöllum, var endurreist í Reykjavík. 1846: Lærði skólinn (líka kallaður Latínuskólinn) fluttist frá Bessastöðum til Reykjavíkur og fékk nafnið Reykjavíkur lærði skóli, en hefur frá 1937 borið ...
Innan herdeilda eru margar stöður eða stéttir, og heitin mismunandi eftir því hvort um er að ræða landher (army), sjóher (navy) eða flugher (air force). Þar sem aldrei hefur verið her á Íslandi skortir íslenska tungu heiti til að lýsa þeirri skiptingu svo vel sé, en hér eru nokkur. Stöðuskipting í bandaríska landhernum : Private - óbreyttur hermaður. Private First ...
Hér má finna einhverjar útskýringar og upplýsingar um stríðsvopn 19. aldar. Mörg þeirra nefnir Bierce í skrifum sínum en vegna hernaðarleysis Íslendinga síðustu aldir skortir íslenskuna mjög oft orð yfir þau. Samantektina má hafa til hliðsjónar við lestur textanna á ensku. Grapeshots - hrúga af járnkúlum er fyrrum voru notaðar sem fallbyssukúlur.Shell - skothylki.Canister shot - skothylki í fallbyssu fyllt ...
Infantry – fótgöngulið       Light infantry - léttvopnað fótgöngulið Cavalry – riddaralið Regiment - hersveit Battalion - herfylki, skipulagseining sem í eru a.m.k. þrjú undirfylki og myndar sérstaka heild innan herdeildar (division) . Brigade - stórfylki, skipulagseining sem í eru a.m.k. tvær hersveitir (regiments) eða tvö fylki (battalions) Private – óbreyttur hermaður Corporal - korporáll, undirliðþjálfi Sergeant – liðþjálfi Warrant ...