18. – 20. september 1863 stóð einn blóðugasti bardagi Borgarastríðsins yfir í norðurhluta Georgíu-fylkis, hinn svonefndi Chickamauga-bardagi (e. the battle of Chickamauga) þar sem um 125 þúsund hermenn börðust; 60.000 úr Sambandshernum og 65.000 úr Suðurríkjaher. Þeim bardaga lauk með sigri Suðurríkjahersins og manntjóni sem var hið annað mesta í sögu stríðsins, með tæplega 35 þúsund föllnum, slösuðum eða horfnum úr báðum fylkingum samtals. Einungis bardaginn við Gettysburg í Pennsylvaníu (1.-3. Júlí 1863) olli meira manntjóni.
Borgin Chickamauga í Georgíu-fylki liggur um 14 km suður af Chattanooga, Tennessee. Frá Chattanooga og niður í norðausturhluta Georgíu stóð yfir röð bardaga á tímabilinu 21. ágúst til 20. september 1863 milli Sambandshers Cumberlands (e. Union Army of the Cumberland) og Suðurríkjahers Tennessee (e. Confederate Army of Tennessee). Þessi svokallaða Chickamauga-herferð hófst þegar Sambandsherinn hernam Chattanooga og neyddi Suðurríkjaherinn í framhaldinu til að hörfa í suðurátt til norðurhluta Georgíu. Sókn Sambandshersins lauk við Chickamauga þegar atlaga Suðurríkjahers neyddi William S. Rosencrans hershöfðinga á endanum til að hopa aftur til Chattanooga. Innrás Sambandsherinn í Georgíu-fylki varð því lengri að sinni þó honum hefði tekist að ná Chattanooga á sitt vald.
Ýmsar tækninýjungar höfðu litið dagsins ljós á þessum tíma. Flutningar með lestum höfðu staðið yfir í minna en þrjá áratugi í Norður-Ameríku, en þarna nýttu herir beggja fylkinga einbreiðar lestarbrautir til að koma birgðum og aðföngum til sín í gegnum hrjóstrugt landslagið. Ritsíminn var kominn til sögunnar og verkfræðingar í liði Sambandshersins smíðuðu flatbytnur og útbjuggu skammbitabrýr (e. trestle bridges) til að koma hermönnum yfir Tennessee-fljót. Það var þó tilkoma Spencer-fjölskotariffilsins (Spencer repeating rifle) sem átti stóran þátt í hinu gífurlega mannfalli. Hann gerði hermönnum kleift að hleypa af 14-20 skotum á mínútu að meðaltali, eða um tvöfalt fleiri en forveri hans, og gjörsamlega tætti upp herfylkingarnar sem fyrir þeim urðu.
James Connolly ofursti í 123. deild Sambandshers Illinois lýsti sinni reynslu af notkun rifflanna í júní 1863 (tekið af síðu American Battlefield Trust):
„Presently the enemy got near enough to us to make a charge on our battery, and on they came; our men are on their feet in an instant and a terrible fire from the “Spencers” causes the advancing regiment to reel and its colors fall to the ground, but in an instant their colors are up again and on they come, thinking to reach the battery before our guns can be reloaded, but they “reckoned without their host,” they didn’t know we had the “Spencers,” and their charging yell was answered by another terrible volley, and another and another without cessation, until the poor regiment was literally cut to pieces….“
Chickamauga-bardaginn í ýmsum heimildum:
- American Battlefield Trust
- New Georgia Encyclopedia
- Wikipedia
- The History Channel: 8 atriði sem þú ættir að vita um Chickamauga-bardagann.
- Chickamauga-herferðin (Wikipedia)