Á vef alfræðiritsins Britannica segir m.a.:
Tapaði málstaðurinn (e. Lost Cause) er sagnfræðileg túlkun frá Borgarastríði Bandaríkjanna sem flestir sagnfræðingar horfa á sem mýtu eða goðsögn, hverrar tilgangur er að varðveita heiður Suðurríkjanna með því að sýna ósigur Suðurríkjabandalagsins í sem bestu ljósi. Samkvæmt þessari túlkun voru það gífurlegir yfirburðir Sambandsins (the Union) varðandi bæði mannafla og aðföng sem færðu þeim sigur í höfn og hún heldur á lofti nostalgískri glansmynd af lífi í Suðurríkjunum fyrir stríð þar sem sáttir þrælar bjuggu og störfuðu hjá velviljuðum þrælaeigendum, en afneitar því að þrælahald hafi átt mikinn — ef þá nokkurn — þátt í að stríðið braust út.
Hugmyndin um hinn tapaða málstað var sett fram í bók blaðamannsins Edward A. Pollard The Lost Cause: A New Southern History of the War of the Confederates sem kom út ári eftir stríðslok og hefur allt frá þeim tíma ýtt undir hugmyndir um yfirburði hins hvíta kynstofns og hatur í garð svartra.
Því er ekki að neita að eftir stríðið voru Suðurríkin í sárum — ekki nóg með að Suðurríkjabandalagið hefði beðið ósigur í úrsagnarstríði sem það taldi sig eiga fullan rétt á að heyja heldur urðu Suðurríkin fyrir hlutfallslega meiri mannskaða en Norðurríkjasambandið og sættu svo eignaupptöku af hendi ríkisins að stríði loknu, í stríðsskaðabætur. Til að bæta gráu ofan á svart voru hermenn hins sigraða Suðurríkjabandalags álitnir uppreisnarmenn (e. rebels) sem barist hefðu gegn sameinuðum Bandaríkjum og sem slíkir áttu þeir ekki rétt á greiðslum uppgjafarhermanna né ekkjur þeirra rétt á ekknalífeyri. Glansmyndinni um hinn tapaða málstað var sjálfsagt ætlað að reisa við sært stolt og laskaða sjálfsmynd Suðurríkjanna og vissulega átti viðurkenning Norðurríkja á þessari hugmyndafræði og upplifun Suðurríkjamanna þátt í því að þjóðin gat sameinast að nýju eftir stríðslok. Þessi sama viðurkenning þeirra seinkaði því hinsvegar verulega að Afríkuættaðir Bandaríkjamenn hlytu sömu borgaralegu réttindi og hvítir samlandar þeirra.
Grein á Britannicu: https://www.britannica.com/topic/Lost-Cause
Grein á Wikipediu: https://en.wikipedia.org/wiki/Lost_Cause_of_the_Confederacy