Skip to content

Drepinn við Resaca – stoðefni við smásögu

Þrátt fyrir að Bierce hafi sjálfur tekið þátt í bardaganum við Resaca 13.-15. maí 1864 er engu að síður líklegt að sögusviðið og söguþráðurinn sé unninn upp úr reynslu hans og upplifun héðan og þaðan. Bardaginn við Resaca var annar í röð þeirra 12 bardaga sem áttu sér stað á tæplega 190 km leið frá Chattanooga í Tennessee til Atlanta í Georgíu, í svonefndri Atlanta-herferð sem gekk út á að ná yfirráðum yfir hinni hernaðarlega mikilvægu Atlanta-borg. 

Atlanta-herferðinni lauk með sigri Sambandshersins og hernámi Atlanta, og mögulega staðsetur Bierce fall hins fífldjarfa Brayle þarna með vilja og kaldhæðni, því hefði (hinn uppskáldaði) Brayle lifað herferðina af hefði honum sjálfsagt hlotnast töluverður heiður í kjölfarið og tilefni fréttaflutnings til frk. Marian Mendenhall. Sjálfur slasaðist Bierce lífshættulega við Kennesaw-fjall í 7. bardaga herferðarinnar 6 vikum síðar, svo hann hefur ekki með góðri samvisku getað staðsett Brayle mikið nær lokasigrinum. 

Í sögunni er bardaginn við Steinafljót (e. Stone’s River) nefndur, sem var einn þeirra bardaga sem Bierce tók sjálfur þátt í. Sá bardagi stóð yfir 31. des. 1862 – 2. jan. 1863 og tæpur þriðjungur þeirra 76.400 sem börðust hlutu bana eða mein af. 

Lýsing Bierce á Brayle liðsforingja er svohljóðandi: „Lieutenant Brayle was more than six feet in height and of splendid proportions, with the light hair and gray-blue eyes which men so gifted usually find associated with a high order of courage“ (í minni þýðingu (feitletrun til áhersluauka): Brayle liðsforingi var yfir sex fet á hæð og glæstur á velli, með ljósleita hárið og grábláu augun sem menn því gæddir tengja vanalega mikilli hugdirfsku.) Í þessu felst ákveðin sjálfshæðni, því þetta er einmitt útlitslýsing Bierce sjálfs; yfir sex fet á hæð, ljóshærður og með gráblá augu.

Rincon Hill-hverfið í San Francisco, sem frk. Mendenhall fyrirfinnur sig í, byggðist upp sem nýtískulegt og mikils metið íbúðahverfi í kjölfar gullæðisins í Kaliforníu fyrir og um miðja 19. öld. Árið 1869 lagði landeigandinn og þingmaðurinn John Middleton til að Second Street yrði lagt í gegnum Rincon-hæð með því að grafa úr hæðinni fyrir veginum til að auðvelda aðgengi að árbakkanum. Þessi framkvæmd klauf Rincon-hæð í tvennt og veikti stoðir húsa beggja vegna við skurðinn, og markaði upphaf endaloka Rincon Hill sem tískuhverfis.  

Uppfært 24. 2. 2026

Published inviðbótarupplýsingarþýðing GH