Resaca er um 40 km suðaustur af Chickamauga og um 115 km norður af borginni Atlanta í Georgíu-fylki. Við Resaca tóku um 159.000 hermenn þátt í bardaganum 13.-15. maí 1864; tæplega 99.000 úr Sambandshernum og 60.000 úr her Suðurríkjabandalagsins. Áætlað manntjón er rétt um 5.550 manns.
Vorið 1864 var Chattanooga í Tennessee-fylki enn á valdi Sambandshersins en ef Sambandinu ætti að takast að komast dýpra inn í Suðurríkin og berja niður uppreisn Suðurríkjabandalagsins þyrfti það að ná borginni Atlanta undir sig. Á tíma borgarastríðsins bjuggu þar um 10.000 manns, þar af um fimmtungur ánauðugir, og samkvæmt manntalinu 1860 var Atlanta ekki nema 13. stærsta borg þess svæðis sem svo varð Suðurríkjabandalagið. Hernaðarlegt mikilvægi hennar fólst í því að í gegnum hana lá lestarkerfi sem tengdist við alla anga bandalagsins, auk þess sem hún var afar mikilvæg miðstöð framleiðslu og verslunar í Suðurríkjunum. Sambandsherinn, með hershöfðingjann William T. Sherman í broddi fylkingar, skipulagði því herferð frá Chattanooga til Atlanta, hverrar markmið var að uppræta her Tennessee-fylkis, hernema Atlanta og skera þannig á nauðsynlegar flutningsleiðir innan Suðurríkjabandalagsins. Bardaginn við Resaca var annar bardaginn í þeirri herferð.
Herferðin stóð yfir frá 7. maí til 2. september 1864 með alls 12 bardögum. Eftir fyrsta bardagann, sem átti sér stað við Rocky Face Ridge og lauk með sigri Sambandshersins, sá Sherman hershöfðingi að með því að ráðast á lestarsporið við Resaca og ná járnbrautinni á sitt vald mætti bæði hindra undanhald Suðurríkjamanna í átt til Atlanta, þar sem þeir yrðu öðrum herdeildum viðbótarstyrkur, og koma í veg fyrir matarbirgðir bærust öðrum herdeildum Suðurríkjabandalagsins.
Þann 27. maí átti fjórði bardaginn sér stað við Pickett’s Mill, og um þann bardaga ritar Ambrose Bierce í minningarbrotum sínum; The Crime at Pickett’s Mill.
Sjöundi bardaginn átti sér stað á Kennesaw-fjalli þann 27. júní. Það var í þeim bardaga eða undanfara hans sem Bierce var skotinn í höfuðið af leyniskyttu úr röðum Suðurríkjamanna og var sendur á hersjúkrahús í Chattanooga. Hann sneri aftur til herdeildar sinnar í september en þrátt fyrir veikindaleyfið voru eftirmálar höfuðáverkans þeir að allar götur síðar þjáðist hann af höfuðverkjum og svimaköstum. Í janúar 1865, eftir 4 ára og 9 mánaða hermennsku, tilkynnti Bierce formlega að hann myndi hætta störfum sem slíkur.
Tengt efni á vefnum:
- 10 staðreyndir um Resaca-bardagann (American Battlefield Trust)
- American Battlefield Trust – Bardaginn við Resaca
- Wikipedia – Bardaginn við Resaca
- Atlanta (borgin) í Borgarastríðinu (Wikipedia)
- Atlanta-herferðin (History.com)