- Áætlað er að um 850.000 manns hafi látist í stríðinu af völdum vopna, sára eða sjúkdóma. Það er hátt í þriðjungur þeirra 3 milljóna manna sem börðust.
- Á tveimur dögum Shiloh-bardaga við bakka Tennesse-fljóts létust fleiri Bandaríkjamenn en í öllum fyrri stríðum Bandaríkjanna samanlagt.
- Í bardaganum við Antietam þann 17. september 1862 létust eða særðust 23.000 manns samtals frá báðum fylkingum á einum degi.
- Við Cold Harbor í Virginíu-fylki, í júní 1864, féllu 7.000 manns á 20 mínútum.
- Sjúkdómar og mein urðu fleirum að bana en bardagasár. Á móti hverjum einum sem lést af sárum í bardaga létust tveir vegna sjúkdóma.
Mannfall í Borgarastríðinu
Published inviðbótarupplýsingar